Skilmálar þjónustu – Bláalínan
Netfang: info@blaalinan.is | Sími: 7689999
1. Almenn ákvæði
Þessir skilmálar gilda um alla þjónustu sem Bláalínan veitir, nema annað sé samið sérstaklega skriflega. Með pöntun samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa.
2. Lýsing á þjónustunni
Bláalínan býður aðstoð heima hjá viðskiptavinum, þar sem starfsfólk kemur til þeirra og hjálpar með ýmislegt sem fellur undir almennar daglegar þarfir aldraðra. Hægt er að koma við í akstri ef þörf er á.
3. Viðskiptavinir
Þjónustan er ætluð fyrst og fremst einstaklingum. Einnig geta fyrirtæki, sveitarfélög og ríkið nýtt sér þjónustuna.
4. Gjaldskrá og innheimta
Startgjald: 7.990 kr. (fyrsti klukkutími)
Hálftímar umfram: 4.490 kr. á hálftíma, rukkaðir um leið og viðbótarvinna hefst
Akstur er ekki rukkaður sér.
Allar upphafnar einingar eru innheimtar að fullu.
5. Greiðsluskilmálar
Greiðslufrestur: 30 dagar frá útgáfudegi reiknings
Eindagi: 5 dagar eftir gjalddaga
Dráttarvextir reiknast samkvæmt gildandi lögum
6. Afbókanir og breytingar
Afbókun þarf að berast með a.m.k. 24 klst. fyrirvara
Ef þjónusta er afbókuð með skemmri fyrirvara, áskilur Bláalínan sér rétt til að innheimta startgjald
7. Ábyrgð
Þjónustan er veitt samkvæmt bestu faglegu venjum
Takmörkuð ábyrgð á eigin búnaði viðskiptavina nema annað sé sérstaklega samið
8. Tafir og aðgengi
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tryggja aðgengi að heimili og upplýsingum
Tafir eða biðtími vegna aðstæðna sem Bláalínan ber ekki ábyrgð á, eru innheimtar samkvæmt gjaldskrá
9. Trúnaður
Allar upplýsingar sem berast Bláalínan um viðskiptavini eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og ekki gefnar upp til þriðja aðila nema lög krefjist.
10. Ágreiningur og lögsaga
Um skilmála þessa gilda íslensk lög
Ágreiningi skal, eftir fremsta megni, leyst með samkomulagi. Ef ekki tekst, skulu íslenskir dómstólar dæma.


